Spalletti næstur í röðinni hjá Chelsea

Luciano Spalletti fagnar með ítalska bikarinn eftir sigurinn á Inter.
Luciano Spalletti fagnar með ítalska bikarinn eftir sigurinn á Inter. Reuters

Enskir fjölmiðlar hafa nú snúið sér að Luciano Spalletti, þjálfara Roma á Ítalíu, og telja hann efstan á blaði yfir þá sem gætu tekið við starfi knattspyrnustjóra hjá Chelsea.

Sky Sports segir í dag að Spalletti sé efstur á blaði hjá enska félaginu eftir að Carlo Ancelotti hjá AC Milan og Mark Hughes hjá Blackburn gengu því úr greipum.

Spalletti, sem er 49 ára gamall, og undir hans stjórn hefur Roma endað í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar, orðið bikarmeistari en liðið vann Inter Mílanó í úrslitaleik um fyrri helgi, og sigrað Real Madrid heima og heiman í Meistaradeild Evrópu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert