Keane búinn í læknisskoðun hjá Liverpool

Robbie Keane gengur til liðs við Liverpool í dag eða …
Robbie Keane gengur til liðs við Liverpool í dag eða á morgun. Reuters

Robbie Keane, írski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem hefur leikið með Tottenham Hotspur undanfarin ár, gekkst undir læknisskoðun hjá Liverpool í morgun og þar með virðist formsatriði að hann gangi endanlega til liðs við félagið.

Talið er að Keane muni skrifa undir fimm ára samning í dag og fái 80 þúsund pund í vikulaun á Anfield. BBC segir að Rafael Benítez hafi gengið frá öllum lausum endum í þeim efnum við Keane um helgina.

Keane er 28 ára gamall og hefur leikið með Tottenham í sex ár en spilaði þar áður með Wolves, Coventry, Inter Mílanó og Leeds. Hann hefur verið stuðningsmaður Liverpool frá barnæsku. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert