Barry verður um kyrrt hjá Aston Villa

Gareth Barry fer hvergi frá Aston Villa.
Gareth Barry fer hvergi frá Aston Villa. Reuters

Aston Villa sendi frá sér yfirlýsingu nú síðdegis þar sem fram kemur að enski landsliðsmaðurinn Gareth Barry verði um kyrrt hjá félaginu og fari ekki til Liverpool. Fyrr í dag bárust af því fregnir að félögin hefðu náð samkomulagi um kaupverðið en í yfirlýsingu frá Villa segir að Liverpool hafi ekki náð að ljúka málinu fyrir þann frest sem það fékk hjá Aston Villa.

,,Lokafresturinn er liðinn og mun Gareth því verða áfram hjá Aston Villa. Við veittum Liverpool frest til að ganga frá málinu og forráðamönnum félagsins var það ljóst,“ segir meðal annars í yfirlýsingu frá Aston Villa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert