Alex Ferguson: Spiluðum frábæran fótbolta á köflum

Sir Alex Ferguson var ánægður með leik sinna manna í …
Sir Alex Ferguson var ánægður með leik sinna manna í kvöld. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hrósaði lærisveinum sínum fyrir frammistöðuna gegn Portsmouth í kvöld en ensku meistararnir innbyrtu sinn fyrsta sigur í deildinni.

„Við lékum á köflum frábæran fótbolta. Fratton Park er erfiður völlur að sækja en við unnum góðan sigur sem var mikill bónus. Við reyndum að spila á þann hátt að mönnum liði vel inni á vellinum. Við létum Paul Scholes sjá um að stjórna ferðinni, við nýttum orkuna sem Darren Fletcher hefur yfir að ráða og við vildum hafa Anderson á miðsvæðinu nálægt Tevez,“ sagði Ferguson eftir leikinn.

,,Mér fannst leikurinn vera jafn þar til þeir skoruðu. Ég var sáttur við leik liðsins í fyrri hálfleik og allan leikinn fannst mér menn leggja sig fram og ég get ekki kvartað yfir vinnusemi þeirra,“ sagði Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth eftir leikinn.

,,Við vorum með þrjá eða fjóra leikmenn sem hafa ekki spilað nokkuð lengi og misstu af undirbúningstímabilinu. Ég varð að henda þeim inná og taka stöðuna á þeim. Í heildina séð fannst mér liðið spila allt í lagi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert