Scholes í banni gegn Villarreal

Paul Scholes verður fjarri góðu gamni gegn Villarreal.
Paul Scholes verður fjarri góðu gamni gegn Villarreal. Reuters

Paul Scholes, miðjumaðurinn reyndi hjá Manchester United, var rekinn af velli í leiknum gegn Zenit St. Pétursborg um Stórbikar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Þar með verður hann í leikbanni í fyrsta leik United í Meistaradeild Evrópu.

Sá leikur er gegn Villarreal frá Spáni um miðjan september. Scholes fékk bannið fyrir að slá boltann með hendi í mark Rússanna undir lok leiksins.  Fyrir það fékk hann sitt annað gula spjald í leiknum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert