Tottenham krækti í stig á Stamford Bridge

Darren Bent er hér að jafna metin fyrir Tottenham á …
Darren Bent er hér að jafna metin fyrir Tottenham á Stamford Bridge. Reuters

Tottenham innbyrti sitt fyrsta stig í úrvalsdeildinni og Chelsea tapaði sínum fyrstu stigum en Lundúnaliðin skildu jöfn, 1:1, á Stamford Bridge í dag. Brasilíumaðurinn Belletti kom Chelsea yfir með marki á 27. mínútu en Darren Bent janfaði á lokamínútu fyrri hálfleiks og þar við sat.

Chelsea, sem hefur ekki tapað 83 leikjum í röð á heimavelli í úrvalsdeildinni eða í fjögur og hálft ár, hefur 7 stig í efsta sæti deildarinnar en Tottenham hefur 1 stig eins og WBA og er í botnsætinu.

Smellið hér til að skoða textalýsingu frá leiknum á Stamford Bridge.

Sunderland og Manchester City hófu leik á Leikvangi ljóssins klukkan 20. Smellið hér til að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu.

Leikmenn Chelsea fagna marki,
Leikmenn Chelsea fagna marki, Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert