Rooney: Liverpool á ekki möguleika á titlinum

Rooney í baráttu við Fabricio Coloccini í leik United og …
Rooney í baráttu við Fabricio Coloccini í leik United og Newcastle. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United og fyrrum leikmaður Everton segir að Liverpool eigi enga möguleika á að hampa Englandsmeistaratitlinum á þessari leiktíð og hann telur að liðið gæti átt í vandræðum með að innbyrða þriðja sætið í deildinni.

,,Það verður erfitt fyrir Liverpool að komast í hóp þriggja efstu liða og ég teldi það framfarir ef það nær þriðja sætinu í deildinni. Ég held að það verði við, Chelsea og Arsenal sem muni raða sér í efstu þrjú sætin,“ segir Rooney í viðtali við breska blaðið The Sun en Rooney var í liði Manchester United sem tapaði fyrir Liverpool á Anfield, í fyrsta sinn í langan tíma sem United bíður lægri hlut fyrir erkifjendum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert