Öruggur sigur Liverpool á PSV

Steven Gerrard fagnar marki sínu í kvöld.
Steven Gerrard fagnar marki sínu í kvöld. Reuters

Liverpool vann tiltölulega öruggan sigur á PSV Eindhoven, 3:1, í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á Anfield í kvöld og stefnir á þægilega stöðu í D-riðlinum þar sem liðið er komið með sex stig eftir tvær umferðir.

Dirk Kuyt kom Liverpool yfir með föstu skoti uppúr hornspyrnu strax á 4. mínútu og Robbie Keane bætti við marki á 34. mínútu með viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf frá Fernando Torres.

Steven Gerrard skoraði síðan, 3:0, beint úr aukaspyrnu á 76. mínútu en tveimur mínútum síðar svaraði Danny Koevermans fyrir hollensku meistarana og þar við sat.

Atvikalýsing frá leiknum, smellið hér.

Atlético Madrid vann Marseille, 2:1, og er með 6 stig eins og Liverpool en Marseille og PSV eru án stiga eftir tvær umferðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert