Phil Brown knattspyrnustjóri Hull var í kvöld útnefndur stjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Nýliðarnir hafa svo sannarlega komið á óvart og sitja í þriðja sæti deildarinnar eftir sjö umferðir.
Lið Hull vann meðal annars Newcastle og Everton en fræknasti sigur liðsins var á Emirates Stadium þar sem nýliðarnir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Arsenal, 2:1.