Byrjunarlið Chelsea og Liverpool

Robbie Keane er með Liverpool í dag gegn Chelsea.
Robbie Keane er með Liverpool í dag gegn Chelsea. Reuters

Stórleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag er viðureign Chelsea og Liverpool á Stamford Bridge. Byrjunarliðin eru klár og góðu fréttirnar fyrir Liverpool er að Robbie Keane er klár í slaginn en óvissa  ríkti um þátttöku hans vegna meiðsla og sömu sögu er að segja um Ashley Cole hjá Chelsea. Hann hefur hrist af sér meiðslin og er í byrjunarliðinu.

Lið Chelsea: Petr Cech - Bosingwa, Carvalho, Terry, A.Cole - Deco, Obi Mikel, Lampard, Malouda - Kalou, Anelka. Varamenn: Cudicini, Ivanovic, Ferreira, Alex, Belletti, Sinclair, Di Santo.

Lið Liverpool: Reina - Arbeloa, Carragher, Agger, Aurelio - Mascherano, Alonso, Gerrard, Riera - Kuyt, Keane. Varamenn: Cavalieri, Hyypia, Babel, Lucas, Pennant, Benayoun, Dossena.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert