Ferguson:Eitt og hálft ár í viðbót

Eitt og hálft ár í viðbót. Ferguson ætlar loks að …
Eitt og hálft ár í viðbót. Ferguson ætlar loks að hætta. Reuters

Þá loksins hefur Alex Ferguson tjáð sig um endalok sín sem þjálfari Manchester United. Hyggst hann hætta endanlega í lok næsta tímabils árið 2010.

Þá verður Ferguson 69 ára gamall en hann hefur nokkrum sinnum áður tilkynnt að hann hyggist hætta en bakkað með það síðar. Nú hins vegar segir hann að nóg sé komið í viðtali við breska blaðið Times og hefur engar áhyggjur af eftirmanni sínum.

„Alls engar. Grunnurinn er til staðar hjá félaginu. Mórallinn allur er góður. En ég vona að viðkomandi verði sterk manneskja. Ekki veitir af því vegna þess að þetta er ekki auðvelt starf.“

Ferguson viðurkennir þó einnig að hugmyndin um að hætta störfum hræði hann mjög.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert