Keane með tvö mörk í sigri Liverpool

Robbie Keane er hér að leika Scott Carson markvörð WBA …
Robbie Keane er hér að leika Scott Carson markvörð WBA og skora annað mark sitt á Anfield í kvöld. Reuters

Liverpool var að skjótast á topp ensku úrvalsdeildarinnar en liðið vann nú í kvöld öruggan sigur á nýliðum WBA, 3:0, á heimavelli sínum, Anfield.

Írinn Robbie Keane skoraði tvö fyrstu mörkin fyrir Liverpool, bæði eftir sendingar frá fyrliðanum Steven Gerrard og Spánverjinn Alvaro Arbeloa opnaði svo markareikning sinn fyrir Liverpool þegar hann skoraði þriðja markið með góðu skoti undir lok leiksins.

Liverpool - WBA bein lýsing

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert