Vonast eftir Scholes í byrjun desember

Paul Scholes er að ná sér af meiðslunum.
Paul Scholes er að ná sér af meiðslunum. Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, á von á að Paul Scholes verði orðinn leikfær í byrjun desember og geti farið með liðinu á heimsmeistaramót félagsliða í Japan um miðjan þann mánuð.

Scholes, sem er 33 ára gamall, meiddist á hné í leik Manchester United gegn AaB frá Danmörku í Meistaradeild Evrópu í september. „Hann er á góðri leið er farinn að sparka bolta og hlaupa beint. Við höfum merkt við hann í vikunni fyrir Japansferðina," sagði Ferguson við Manchester Evening News.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert