Benítez: Slæmur dagur hjá okkur

Rafael Benítez.
Rafael Benítez. Reuters

,,Við misstum af gullnu tækifæri á að komast uppfyrir Chelsea en við lékum bara ekki nógu vel og þetta var slæmur dagur hjá okkur," sagði Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool eftir markalaust jafntefli sinna manna gegn Fulham í dag.

,,Það vantaði einhvern kraft í liðið og við náðum okkur ekki á strik. Við fengum þó þrjú fín færi í leiknum og við hefðum átt að nýta einhvert þeirra. Við vorum mjög vonsviknir með úrslitin og enn meira eftir að við heyrðum hvernig fór hjá Chelsea,“ sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert