Kærður fyrir að kalla dómarann Mikka mús

Joe Kinnear var ekki sáttur við Martin Atkinson dómara.
Joe Kinnear var ekki sáttur við Martin Atkinson dómara. Reuters

Enska knattspyrnusambandið ákærði í dag Joe Kinnear, knattspyrnustjóra Newcastle United, fyrir ósæmileg ummæli í garð Martins Atkinsons dómara í leik liðsins við Fulham fyrr í þessum mánuði.

Kinnear var óhress með Atkinson og sagði að frammistaða hans hefði minnt á Mikka mús. Hann lýsti jafnframt þeirri ákvörðun hans að sleppa vítaspyrnu á Fulham sem "djöfullegri."

Enska knattspyrnusambandið hefur beðið Kinnear að útskýra þessi ummæli sín og gaf honum frest til 12. desember til þess. Fulham vann umræddan leik, 2:1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert