Berbatov tryggði Manchester United sigur

Cristino Ronaldo hefur hér betur í einvígi við Stewart Downing …
Cristino Ronaldo hefur hér betur í einvígi við Stewart Downing á Old Trafford í kvöld. Reuters

Dimitar Berbatov tryggði Manchester United 1:0 sigur gegn Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Old Trafford í kvöld. Búlgarinn skoraði sigurmarkið á 69. mínútu leiksins og meistararnir eru í þriðja sæti, sjö stigum á eftir toppliði Liverpool en eiga tvo leiki til góða.

Manchester United er því taplaust í átta leikjum í röð en gengi Middlesbrough er öfugt. Liðið hefur ekki náð að vinna sigur í síðustu átta leikjum sínum og situr það í 17. sæti deildarinnar.

Bein textalýsing frá leiknum er hér að neðan:

4. Wayne Rooney átti ágæt skot sem Turnbull markvörður Middlesbrough þurfti að hafa sig allan við að slá út í teiginn.

14. Cristiano Ronaldo átti gott skot beint úr aukaspyrnu utan teigsins en boltinn fór hárfínt framhjá markinu.

22. Ronaldo rennir boltanum naumlega framhjá markinu úr góðu færi eftir frábæra skyndsókn og sendingu frá Rooney.

30. Ronaldo enn og aftur í færi en skot Portúgalans úr teignum fór beint í fangið á Turnbull.

32. Bakvörðurinn Rafael da Silva þrumar boltanum í hliðarnetið eftir snarpa sókn United. Mark hjá heimamönnum virðist liggja í loftinu.

44. Turnbull ver meistaralega þrumufleyg frá Wayne Rooney.

45. Búið er að flauta til leikhlés á Old Trafford. Staðan er, 0:0, í leik sem Manchester United hefur haft tögl og hagldir í en meisturunum hefur ekki tekist að nýta nokkur góð marktækifæri.

Síðari hálfleikur er hafinn á Old Trafford. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í leikhléinu.

62. Besta færi Middlesbrough. Tuncay Sanli skallar rétt framhjá eftir góða sókn gestanna.

62. Tvöföld skipting hjá United. Gömlu brýnin Gary Neville og Paul Scholes koma inná fyrir Rafae da Silva og Darren Fletcher.

66. Park átti gott skot rétt utan teigs en enn og aftur var Turnbull markvörður Middlesbrough vel á verði. Hann varði skotið í horn.

69. MARK!! Dimitar Berbatov hefur náð að brjóta ísinn fyrir Manchester United en eftir þunga sókn heimamanna féll boltinn fyrir fætur Búlgarans sem skoraði með föstu skoti af stuttu færi.

71. Park mokar boltanum yfir mark Middlesbrough úr algjöru dauðafæri eftir góða sendingu frá Gary Neville.

83. Cristiano Ronaldo er kallaður af velli og Ryan Giggs kemur inná í hans stað.

84. Park komst í gott skotfæri en skot Kóreumannsins fór rétt framhjá. United hefur tekið öll völd á vellinum eftir markið og allur eldmóðurinn er farinn af leikmönnum Middlesbrough.

90. Leiknum er lokið með 1:0 sigri Manchester United.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert