Arsenal sagt hafa boðið í Shay Given

Shay Given hefur ekki haft mikla ástæðu til þess að …
Shay Given hefur ekki haft mikla ástæðu til þess að fagna undanfarið, en nú gæti hagur hans vænkast, fari hann til Arsenal. Reuters

Samkvæmt The Daily Telegraph hefur Arsenal boðið átta milljónir punda í Shay Given, markvörð Newcastle United.

Given hefur staðið sig frábærlega á tímabilinu, þó svo það endurspeglist ekki í gengi liðsins. Var hann til að mynda besti maður Newcastle í 1:5 ósigri liðsins gegn Liverpool og bjargaði liðinu frá frekari niðurlægingu.

Arsene Wenger hefur sagst ætla að styrkja lið sitt í janúar, en ekki var talið að hann myndi leggja út fyrir markverði, enda hefur Manuel Almunia þótt standa sig ágætlega. Hefur Wenger sagst vilja fá tvo miðvallarleikmenn og er annar þeirra talinn vera Andrei Arshavin, rússan sem leikur með Zenit í Sankti Pétursborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert