Gerrard gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér

Steven Gerrard er í vondum málum og gætu titilvonir Liverpool verið í uppnámi vegna málsins. stækka

Steven Gerrard er í vondum málum og gætu titilvonir Liverpool verið í uppnámi vegna málsins. Reuters

Enski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Steven Gerrard, fyrirliði úrvalsdeildarliðsins Liverpool var í gær ákærður fyrir að hafa tekið þátt í líkamsárás á skemmtistað í Southport. Hámarksrefsing fyrir slíkt brot eru fimm ár. Ákæran verður tekin fyrir í réttarsal þann 23. janúar næstkomandi.

Samkvæmt ströngustu lögum gæti Gerrard þurft að dúsa í fangelsi í fimm ár, en það verður að teljast afar ólíklegt, ekki síst þegar atvikið er borið saman við ofbeldisgjörðir annars knattspyrnumanns, Joey Barton, sem leikur með Newcastle United.

Barton fékk sex mánaða fangelsisdóm í maí síðastliðnum, fyrir grófa líkamsárás á tvo menn, annan þeirra 16 ára dreng. Var Barton þá nýlaus úr haldi fyrir árás á samherja sinn í Manchester City, Ousmane Dabo.

Þá eru ótaldir aðrir leikmenn, sem í gegnum tíðina hafa dúsað í steininum. Má þar nefna Tony Adams, sem sat af sér dóm fyrir ölvunarakstur tímabilið 1990/91, árið sem Arsenal varð meistari.

Þá sat Duncan Ferguson í fangelsi fyrir að skalla andstæðing, Graham Rix, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins fékk dóm fyrir kynferðisbrot og Peter Storey hjá Arsenal fékk þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik.

Gerrard og félagar hans eru grunaðir um að hafa ráðist að 34 ára gömlum skífuþeytara, Marcus McGee á skemmtistaðnum Lounge Inn. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús með brotna tönn og áverka í andliti.

Samkvæmt frétt enska dagblaðsins The Guardian var tónlistarval skífuþeytarans deiluefnið, en vitað er að Gerrard hrífst mjög af trymblinum Phil Collins og hljómsveitinni Coldplay. Óstaðfestar heimildir herma, að skífuþeytarinn hafi hinsvegar spilað ófá Abba-lög, sem, kannski skiljanlega, fór fyrir brjóstið á Gerrard og félögum. Vitað er að McGee er stuðningsmaður Manchester United, erkifjenda Liverpool, en ekki er talið að sú staðreynd hafi átt neitt að gera með slagsmálin.

Það virðist kaldhæðni örlaganna, að Gerrard, sem er talin framúrskarandi fyrirmynd í fótboltanum, var beðinn um að taka Wayne nokkurn Rooney undir sinn verndarvæng þegar Rooney var kallaður í enska landsliðið, en Rooney hefur löngum átt erfitt með að hemja skap sitt, en þeir félagar koma báðir frá Liverpool.

Gerrard skoraði tvívegis í 5:1-sigri Liverpool á útivelli gegn Newcastle á sunnudag. Næsti leikur Liverpool er í bikarkeppninni gegn Preston laugardaginn 3. janúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is