Hermann orðaður við Rangers og tvö ensk 1. deildarlið

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Reuters

Hermann Hreiðarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu er orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Rangers í enskum netmiðlum í dag sem og ensku 1. deildar liðin Reading og Ipswich.

Eins og Hermann greindi frá í samtali við Morgunblaðið á gamlársdag vill hann komst í burtu frá Portsmouth og mun félagið ekki standa í vegi fyrir honum fara en Eyjamaðurinn öflugi hefur lítið fengið að spreyta sig með bikarmeisturunum á yfirstandandi leiktíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert