„Er að taka risastökk“

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. mbl.is/Árni Sæberg

,,Þetta var besta gjöfin sem ég gat hugsað mér. Ég er ennþá að jafna mig eftir símtalið í fyrradag þar sem ég fékk að vita að þetta væri í höfn,“ sagði knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson við Morgunblaðið í gær en hann mun á næstu dögum skrifa undir þriggja ára samning við enska stórliðið Liverpool.

Liverpool komst að samkomulagi við danska úrvalsdeildarliðið AGF um kaupin á íslenska unglingalandsliðsmanninum en Guðlaugur, sem er 17 ára gamall, hefur verið í herbúðum AGF í eitt og hálft ár og á dögunum tilkynnti félagið að hann hefði verið færður upp í aðalliðið og átti að hefja æfingar með því eftir helgina.

Verður erfitt en mikil ákorun

,,Ég fer út í næstu viku og fer þá í læknisskoðun og eftir hana mun ég skrifa undir samninginn. Þetta er stórt tækifæri sem ég get ekki látið framhjá mér fara. Ég er auðvitað að taka risastökk og ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta verður erfitt en á móti er þetta mikil áskorun,“ sagði Guðlaugur Victor. Sjá ítarlegra viðtal við Guðlaug í Morgunblaðinu í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert