Guðlaugur lék með Liverpool gegn Manchester United

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. Ljósmynd/ Ásta Marta

Guðlaugur Victor Pálsson lék síðustu 20 mínúturnar með varaliði Liverpool í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við erkifjendur sína í Manchester United í varaliðsdeildinni.

Manchester United tefldi fram markverðinum Tomasz Kuszczak, Brasilíumanninum Rodrigo Possebon og serbneska landsliðsmanninum Zoran Tosic svo einhverjir séu nefndir en allir hafa þeir komið við sögu með aðalliði United á leiktíðinni.

Hjá Liverpool komu við sögu leikmenn á borð við Nabil El Zhar, David Ngog og Damien Plessis en þeir hafa spilað með aðalliði Liverpool á tímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert