Tekst Cardiff að slá Arsenal út?

Robin Van Persie framherjinn snjalli í liði Arsenal.
Robin Van Persie framherjinn snjalli í liði Arsenal. Reuters

Það skýrist í kvöld hvort það verður Arsenal eða Cardiff sem mætir Jóhannesi Karli Guðjónssyni og félögum hans í Burnley í 5. umferð ensku bikarkeppninnar en liðin eigast við í endurteknum leik í 4. umferðinni á Emirates Stadium í kvöld. Leikurinn átti upphaflega að fara fram þann 25. janúar en var frestað vegna veðurs.

Liðin gerðu markalaust jafntefli á heimavelli Cardiff í síðasta mánuði en Cardiff fór alla leið í úrslit í bikarnum í fyrra en tapaði fyrir Hermanni Hreiðarssyni og samherjum hans í Portsmouth í úrslitaleiknum á Wembley.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert