Ibrahimovic: Er betri en Rooney og Berbatov

Zlatan Ibrahimovic í baráttu við Leiva Lucas í leik Inter …
Zlatan Ibrahimovic í baráttu við Leiva Lucas í leik Inter og Liverpool í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. Reuters

Svíinn Zlatan Ibrahimovic, framherji Ítalíumeistara Inter, ætlar að sýna framherjum Manchester United að hann sé betri en þeir þegar Inter tekur á móti Englands- og Evrópumeisturum Manchester United í fyrri rimmu liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á San Síró annað kvöld.

,,Ég hef alltaf mikinn metnað og ég vil sýna og sanna fyrir sjálfum mér að ég betri en Rooney og Berbatov. Ég ætla mér að skora og leggja mitt af mörkum til vinna United,“ sagði Ibrahimovic í samtali við ítalska netmiðilinn Tuttomercatoweb.com.

Svíinn hefur verið í fantaformi með Inter á leiktíðinni sem trónir á toppi ítölsku A-deildarinnar. Hann hefur skorað 14 mörk í deildinni og hefur sjaldan eða aldrei verið í betra formi.

,,Marco Van Baster var í miklu uppáhaldi hjá mér og hann var mitt átrúnaðargoð þegar ég var ungur,“ sagði Zlatan.





 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert