Carragher: Erum skipulagðasta liðið í keppninni

Jamie Carragher og Arjen Robben í baráttunni í kvöld.
Jamie Carragher og Arjen Robben í baráttunni í kvöld. Reuters

Jamie Carragher varnarmaðurinn öflugi í liði Liverpool var að vonum ánægður með sigur liðsins á Spánarmeisturum Real Madrid en Yossi Benayoun skoraði eina mark leiksins 10 mínútum fyrir leikslok.

,,Mörk á útivelli eru gulls ígildi í Evrópukeppninni og þessi úrslit þýða að Real Madrid verður að skora gegn okkur á Anfield. Við höfum gert vel í
Evrópukeppninni með að því að vera vel skipulagðir og ég er á því að við
séum með eitt best skipulagða liðið í keppninni. Þess vegna höfum við gert það gott í Evrópukeppninni undanfarin ár og gerðum í þessum leik," sagði Jamie Carragher

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert