Gerrard klár en Torres enn á sjúkralistanum

Steven Gerrard kennir sér meins í leiknum gegn Middlesbrough á …
Steven Gerrard kennir sér meins í leiknum gegn Middlesbrough á laugardaginn. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool er vongóður um að fyrirliðinn Steven Gerrard geti spilað með liðinu annað kvöld en þá tekur það á móti Sunderland í ensku úrvalsdeildinni. Framherjinn Fernando Torres verður hins vegar ekki vegna meiðsla.

Gerrard haltraði af velli í tapleik Liverpool gegn Middlesbrough í fyrrakvöld en ekki var um alvarleg meiðsli að ræða heldur fann Gerrard fyrir krampa í fætinum.

,,Það var allt í lagi með Steven og vonandi verður hann klár í slaginn á morgun,“ sagði Benítez eftir æfingu Liverpool í dag. ,,Torres er ekki klár ennþá og verður ekki í hópnum á morgun,“ sagði Benítez en Alvaro Arbeloa og Daniel Agger eru einnig á sjúkralistanum og koma ekki við sögu gegn Sunderland.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert