Eto'o vonar að Real Madrid slái Liverpool út

Samuel Eto'o framherji Barcelona.
Samuel Eto'o framherji Barcelona. Reuters

Samuel Eto'o framherji Barcelona vonar að Real Madrid slái Liverpool út í Meistaradeildinni en liðin mætast á Anfield í kvöld í síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar.

Eto'o vill að öll fjögur spænsku liðin komist áfram en auk Barcelona og Real Madrid eru Villareal og Atletico Madrid í 16 liða úrslitunum. Liverpool hafði betur á Santiago Bernebau og þykir liðið sigurstranglegra í kvöld enda er Anfield mikil gryfja og þá sérstaklega í Evrópuleikjum.

,,Ég vil sjá öll liðin sem leika í okkar deild komast eins langt og þau geta. Ég vona að spænsku liðin fari áfram en umfram allt þá vil ég að liðið sem hampar Evrópumeistaratitlinum verði Barcelona,“ segir Eto'o í viðtali við spænska blaðið Sport í dag en Börsungar taka á móti frönsku meisturunum í Lyon annað kvöld en liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum,

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert