Steven Gerrard: Vorum ógnvekjandi

Steven Gerrard og Fernando Torres fagna saman marki þess fyrrnefnda …
Steven Gerrard og Fernando Torres fagna saman marki þess fyrrnefnda á Anfield í kvöld. Reuters

,,Við vorum ógnvekjandi," sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, á vef félagins eftir hinn magnaða sigur á Spánarmeisturum Real Madrid í síðari viðureign liðanna á Anfield í kvöld. Liverpool sýndi frábær tilþrif og kjöldró Madridarliðið, 4:0, og vann samtals, 5:0.

,,Við gerðum út um þetta einvígi á fyrsta hálftímanum og mér fannst við þá vera ógnvekjandi. Í seinni hálfleik hefðum við getað bætt fleiri mörkum við en við erum að vonum virkilega ánægðir. Frammistaða alls liðsins var hreint frábær,“ sagði Gerrard sem skoraði tvö af mörkum sinna manna.

,,Við urðum að gefa Benayoun góðan leik. Hann var magnaður í fyrri leiknum en hann gat því miður ekki spilað í kvöld vegna meiðsla,“ sagði Gerrard en Liverpool á annan stórleik fyrir höndum því á laugardaginn sækja þeir meistara Manchester United heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert