Mark Hughes: Áttum að skora fleiri mörk

Mark Hughes knattspyrnustjóri City,
Mark Hughes knattspyrnustjóri City, Reuters

Mark Hughes knattspyrnustjóri Manchester City segir að liðið sé í góðri stöðu til að komast áfram í UEFA-bikarnum eftir 2:0 sigur á danska liðinu Álaborg í kvöld.

,,Þetta voru mjög jákvæð úrslit og gott að við héldum marki okkar hreinu. Við áttu að skora fleiri mörk og fengum svo sannarlega færin til að gera út um einvígi,“ sagði Hughes eftir leikinn.

,,Mér fannst mínir menn sýna mikla fagmennsku og liðið er í fínu formi. Það var mjög gott að við náðum að skora snemma og það létti pressu af mönnum. Álaborg er gott lið en það sýndi kannski ekki alveg sitt rétta andlit að þessu sinni,“ sagði Hughes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert