Gerrard ekki með gegn Arsenal

Steven Gerrard er meiddur og Rafael Benítez er ekki ánægður með það. stækka

Steven Gerrard er meiddur og Rafael Benítez er ekki ánægður með það. Reuters

Netútgáfur dagblaðanna Daily Mail og Telegraph segja í kvöld að Steven Gerrard fyrirliði Liverpool verði ekki með á þriðjudaginn þegar lið hans mætir Arsenal í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Jafnframt er sagt að mjög ólíklegt sé að hann spili gegn Hull næsta laugardag en nárameiðslin hafi tekið sig upp aftur og Gerrard hafi verið fyrirskipuð vikuhvíld af læknum Liverpool. Hann missti af átta marka leiknum gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið en meiðslapróf fyrir leikinn leiddi í ljós að fyrirliðinn væri ekki leikfær.

Liverpool á frí um helgina en leikurinn við Arsenal var færður til þriðjudags þar sem Arsenal mætir Chelsea í undanúrslitum bikarkeppninnar á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is