Ronaldo orðinn markahæstur

Cristiano Ronaldo fagnar öðru marki sínu með stæl gegn Tottenham …
Cristiano Ronaldo fagnar öðru marki sínu með stæl gegn Tottenham í gær. Reuters

Cristiano Ronaldo úr Manchester United er orðinn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir mörkin tvö sem hann skoraði í leiknum magnaða gegn Tottenham á Old Trafford í gær.

Ronaldo kom Englandsmeisturunum á sporið gegn Tottenham þegar hann skoraði fyrsta mark þeirra úr vítaspyrnu og breytti stöðunni í 2:1 og hann kom svo sínum mönnum í 3:2 með skallamarki og fagnaði því með fara úr treyjunni eins og myndin sýnir.

Markahæstu leikmenn eru:

17 - Cristiano Ronaldo, Manchester United
15 - Nicolas Anelka, Chelsea
13 - Steven Gerrard, Liverpool
13 - Robinho, Manchester City
13 - Fernando Torres, Liverpool
12 - Gabriel Agbonlahor, Aston Villa
12 - Darren Bent, Tottenham
12 - Kevin Davies, Bolton
12 - Frank Lampard, Chelsea
12 - Wayne Rooney, Manchester United
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert