Arshavin með Arsenal á Old Trafford

Andrei Arshavin.
Andrei Arshavin. Reuters

Arsenal endurheimtir Rússann Andrei Arshavin þegar liðið mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðin mætast í hádeginu á laugardaginn þar sem United dugar stig til að innsigla sigur sinn í deildinni.

Arshavin lagðist í rúmið með flensu og gat ekki spilað á móti Chelsea um síðustu helgi en hann hefur nú jafnað sig og er klár í slaginn að sögn Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal.  Rússinn var útnefndur leikmaður aprílmánaðar en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Arsenal í 4:4 jafntefli gegn Liverpool á Anfield.

Arsenal verður án William Gallas, Gael Clichy, Eduardo og markvarðarins Manuel Almunia en þeir eru allir meiddir. Leikurinn hefur litla þýðingu fyrir Lundúnaliðið sem endar tímabilið í fjórða sæti deildarinnar.

Wenger og lærisveinar stefna á að spilla veisluhöldum Manchester-liðsins, sem ekki hefur fengið oft tækifæri til að hampa titlinum á Old Trafford.

,,Það lítur allt út fyrir að Manchester United verði meistari en við getum seinkað því. Við viljum spila fyrir stoltið og sanna fyrir okkur að við getum gert góða hluti. Við lofuðum sjálfum okkur þann 1. janúar að við myndum gefa allt í hvern leik til loka tímabilsins,“ segir Wenger en hans menn töpuðu fyrir United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, samals 4:1, en höfðu betur í deildarleiknum á Emirates, 2:1.


 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert