Barry: Mikið af hæfileikum hjá Manchester City

Gareth Barry skrifaði undir fimm ára samning við Manchester City.
Gareth Barry skrifaði undir fimm ára samning við Manchester City. Reuters

Gareth Barry nýjasti leikmaður Manchester City segist afar ánægður með vistaskiptin frá Aston Villa en enski landsliðsmaðurinn skrifaði nú síðdegis undir fimm ára samning við Manchester-liðið.

,,Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Manchester City. Það þurfti ekki fortölur frá Mark Hughes, félagið stefnir í þátt sem ég vil fara. Það er mikið af hæfileikum hér og ég er viss um að nokkrir fleiri leikmenn muni bætast í leikmannahópinn í sumar,“ segir Barry á vef Manchester City.

Mark Hughes knattspyrnustjóri City segir mikinn feng í því að fá Gareth Barry til liðs við félagið.

,,Gareth er klárlega einn af bestu miðjumönnunum í ensku úrvalsdeildinni. Þegar leikmenn með þessa hæfileika eru á lausu þá viltu reyna að fá þá svo við erum himinlifandi að okkur tókst að semja við hann,“ segir Hughes á vef City.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert