Owen samdi við United til tveggja ára

Michael Owen er orðinn leikmaður Manchester United. stækka

Michael Owen er orðinn leikmaður Manchester United. Reuters

Michael Owen er orðinn leikmaður Manchester United en framherjinn skrifaði nú í kvöld undir tveggja ára samning við Englandsmeistarana að undangenginni ítarlegri læknisskoðun.

,,Michael er heimsklassa framherji. Hann er mikill markaskorari eins og tölur sýna og við erum spenntir að fá hann til okkar,“ sagði Ferguson eftir að Owen hafði skrifað undir samninginn.

,,Ég hafði rætt við önnur félög en það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Ferguson hringdi í mig á miðvikudagskvöldið. Hann bauð mér í morgunverð daginn eftir og tjáði mér þar að hann vildi fá mig. Ég samþykkti það án þess hugsa málið.

Ég lít á þetta sem frábært tækifæri og ég hlakka mikið til að verða leikmaður Manchester United. Ég er heppinn því ég þekki marga leikmenn liðsins og ég þakka Sir Alex fyrir að hafa trú á mér og get fullvissað hann um að ég mun borga honum til baka með mörkum og góðri frammistöðu,“ sagði Owen.




  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is