Owen tryggði Manchester United sigur (myndskeið)

Michael Owen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Manchester United í …
Michael Owen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Manchester United í dag. Reuters

Michael Owen opnaði markareikning sinn fyrir Englandsmeistara Manchester United þegar hann tryggði lið sínu 3:2 sigur gegn úrvalsliði Malasíu en leikurinn fór fram í Kuala Lumpur í dag. Owen skoraði sigurmarkið þegar um fimm mínútur voru til leiksloka en þetta var fyrsti leikur United á undirbúningstímabilinu.

Wayne Rooney og Nani komu United í 2:0 á fyrsta hálftíma leiksins en Malasíumenn voru ekki af baki dottnir. Þeir jöfnuðu metin með mörkum á 45. og 50. mínútu en Owen sem leysti Rooney af hólmi í seinni hálfleik tryggði United sigurinn eftir undirbúning frá Darren Gibson og Ryan Giggs.

Lið Man Utd: Van der Sar (Foster 46); O'Shea, Ferdinand (Brown 61), Evans, Evra (Fabio 61); Gibson, Scholes (Tosic 61), Anderson (Giggs 76), Nani; Rooney (Owen 61), Berbatov (Macheda 76).

Smellið hér til að sjá sigurmark Owens

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert