Ferguson: Owen á að skora 15 mörk

Michael Owen byrjar vel með Manchester United.
Michael Owen byrjar vel með Manchester United. Reuters

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að það sé eðlilegt að búast við því að Michael Owen skori 15 mörk fyrir liðið á komandi keppnistímabili.

Ferguson kom á óvart í sumar þegar hann samdi við Owen, sem hefur leikið með Newcastle undanfarin ár. Owen byrjar vel því hann skoraði í tveimur fyrstu æfingaleikjunum og átti stangarskot í þeim þriðja.

„Michael er þegar búinn að skora tvö mörk og ég vona að hann eigi helling inni. Ef þið lítið á tölfræðina hans í gegnum árin, meira að segja með Newcastle á meðan liðinu gekk illa, gerði hann mark í öðrum hverjum leik. Hann getur auðveldlega náð því aftur og ef hann spilar 25 leiki fyrir mig í vetur tel ég að hann muni skora 15 mörk," sagði Ferguson við fréttamenn í Suður-Kóreu í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert