Neville úr leik næstu mánuðina

Phil Neville í leik með Everton gegn Burnley.
Phil Neville í leik með Everton gegn Burnley. Reuters

Phil Neville fyrirliði Everton verður frá keppni næstu mánuðina. Neville meiddist í leiknum gegn Fulham í gær og í dag kom í ljós að krossband í hné leikmannsins slitnaði sem þýðir að hann verður frá æfingum og keppni næstu mánuðina.

Þetta er mikið áfall fyrir Everton-liðið enda er Neville mikill leiðtogi í liðinu, vinnusamur og drjúgur leikmaður. Hann er 31 árs gamall sem kom til Everton frá Manchester United.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert