Stórglæsilegt mark hjá Fletcher (myndband)

Darren Fletcher fagnar marki sínu gegn Everton í gær.
Darren Fletcher fagnar marki sínu gegn Everton í gær. Reuters

Skoski landsliðsmaðurinn Darren Fletcher skoraði algjört draumamark þegar hann kom Manchester United í 1:0 gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Old Trafford. Tim Howard, fyrrum markvörður United, var varnarlaus þegar Fletcher tók boltann á lofti og þrumaði honum upp í samskeytin. Örugglega eitt fallegasta markið á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta var þriðja mark Fletchers í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og 13. markið sem hann skorar fyrir United í ensku úrvalsdeildinni og án efa það langflottasta.

Markið hjá Fletcher

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert