Portsmouth kallar markvörð heim

David James glímir við meiðsli. stækka

David James glímir við meiðsli. Reuters

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth, sem Hermann Hreiðarsson leikur með, hefur kallað markvörðinn Asmir Begovic heim úr lánsdvöl hjá 1. deildarliði Ipswich. Ástæðan er sú að David James, enski landsliðsmarkvörðurinn, er tæpur vegna meiðsla.

Begovic er 22 ára gamall, landsliðsmarkvörður Bosníu, og hefur slegið í gegn hjá stuðningsmönnum Ipswich með góðri frammistöðu sinni. Hann hafði aðeins  verið þar í sex vikur en átti að vera í láni til áramóta.

James glímir við meiðsli í kálfa en Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur tilkynnt honum að hann verði að vera heill heilsu til að eiga möguleika á að verja mark landsliðsins í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku næsta sumar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is