Benítez: Verðum eitt af fjórum efstu

Rafael Benítez og Steven Gerrard hafa ekki haft yfir miklu …
Rafael Benítez og Steven Gerrard hafa ekki haft yfir miklu að gleðjast undanfarið. Reuters

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst viss um að lið hans endi sem eitt af fjórum efstu liðum ensku úrvalsdeildarinnar þrátt  fyrir köflótt gengi í vetur. Liverpool tekur á móti Wigan á Anfield í kvöld.

Benítez og hans menn hafa ekki unnið nema þrjá af síðustu 15 leikjum sínum og þeir hafa ekki fagnað sigri á heimavelli síðan þeir lögðu Manchester United í október.

„Ég er sannfærður um að við náum inní hóp fjögurra efstu því ég veit að liðið er betra en það sýnir þessa dagana. Ég get fullvissað alla um að við náum þessu takmarki. Við höfum staðið okkur vel í fimm ár og aðalmálið er að halda okkar striki því félagið er sterkara á öllum sviðum en það var fyrir fimm árum. Þetta er erfiður kafli en við vinnum okkur útúr honum," sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert