Benítez: Mér var létt

Fernando Torres komst lítt áleiðis gegn Reading.
Fernando Torres komst lítt áleiðis gegn Reading. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool sagðist hafa verið létt þegar flautað var til leiksloka á Madejski Stadium í kvöld en Reading og Liverpool skildu jöfn, 1:1, í 3. umferð ensku bikarkeppninnar og mætast aftur á Anfield miðvikudaginn 13. janúar.

,,Mér er létt. Að spila sjónvarpsleik og það á móti Liverpool gaf leikmönnum Reading mikinn kraft og liðið lék mjög vel gegn okkur. Leikmenn Reading börðust eins og ljón út um allan völl og þeir gerðu okkur erfitt fyrir. Þetta var því mjög erfiður leikur en það jákvæðasta er að við mætum þeim í öðrum leik á Anfield,“ sagði Benítez.

,,Við vitum að við eigum möguleika á að vinna tvo titla á tímabilinu, Evrópudeild UEFA og ensku bikarkeppnina og við munum reyna okkar allra besta til að gera það og bæta stöðu okkar í deildinni.“



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert