Reading fékk heimaleik við WBA

Shane Long fagnar sigurmarki Reading gegn Liverpool. Reading mætir WBA.
Shane Long fagnar sigurmarki Reading gegn Liverpool. Reading mætir WBA. Reuters

Íslendingaliðið Reading, sem er búið að slá út úrvalsdeildarliðin Liverpool og Burnley, dróst rétt í þessu gegn West Bromwich Albion í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Liðin eru á sitthvorum enda 1. deildarinnar, Reading við botninn en WBA við toppinn.

Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth heimsækja nágranna sína í 2. deildarliði Southampton en Grétar Rafn Steinsson og hans menn í Bolton verða á heimavelli gegn annaðhvort Tottenham eða Leeds. 

Þessi lið mætast:

Wolves eða Crystal Palace - Aston Villa
Manchester City - Stoke
Derby - Birmingham
Bolton - Tottenham eða Leeds
Chelsea - Cardiff
Fulham - Notts County eða Wigan
Reading - WBA
Southampton - Portsmouth

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert