Tottenham virðist hafa unnið slaginn um Eið

Eiður Smári Guðjohnsen semur við Tottenham að mati ensku blaðanna.
Eiður Smári Guðjohnsen semur við Tottenham að mati ensku blaðanna. www.asm-fc.com

Netútgáfur ensku blaðanna Daily Mail og The Guardian sögðu fyrir stundu að svo virtist sem Tottenham Hotspur hefði borið sigur úr býtum í slagnum við West Ham um Eið Smára Guðjohnsen.

Daily Mail segir að reiknað sé með því að Eiður gangist undir læknisskoðun hjá Tottenham á morgun og félagið fái hann lánaðan frá Mónakó út þetta keppnistímabil. Franska félagið hafi samþykkt að greiða stóran hluta launa Eiðs sem er sagður fá 2,5 milljónir punda í árslaun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert