Benítez: Frábær frammistaða liðsins

Rafael Benítez er ánægður með gang mála á Anfield þessa …
Rafael Benítez er ánægður með gang mála á Anfield þessa dagana. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool er ekki vanur að brosa en hann gerði það þó eftir sigur sinna manna gegn Everton á Anfield í dag og með sigrinum komst Liverpool upp í fjórða sæti deildarinnar.

,,Þetta voru frábær úrslit og frammistaðan hjá liðinu var virkilega góð. Stuðningsmennirnir studdu vel við bakið á liðinu og hollusta leikmanna var til fyrirmyndar. Þetta var því virkilega jákvætt. Vonandi fáum við enn meira sjálfstraust fyrir næsta leik okkar sem er á móti Arsenal,“ sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert