Ballack þreyttur á afsökunum Wengers

Michael Ballack og Cesc Fabregas í baráttu um boltann á Stamford Bridge í gær. stækka

Michael Ballack og Cesc Fabregas í baráttu um boltann á Stamford Bridge í gær. Reuters

Mihael Ballack, þýski miðjumaðurinn í liði Chelsea, segist vera orðinn þreyttur á sífelldum afsökunum Arsene Wengers knattspyrnustjóra Arsenal. Wenger sagði eftir ósigur sinna manna gegn Chelsea í gær að Arsenal hafði verið betri aðilinn í leiknum og hefði verðskuldað sigur.

,,Ef maður lítur á stöðuna núna þá lítur allt út fyrir það að þetta verði barátta á milli Manchester United og okkar um titilinn. Við vissum hvernig Arsenal myndi spila. Við gátum séð það eftir fyrsta leik okkar gegn Arsenal og einnig eftir leik liðsins á móti Manchester United. Þetta er alltaf sami leikstílinn,“ segir Ballack í viðtali við enska blaðið Daily Mail.

,,Wenger er alltaf með einhverjar afsakanir. Fótbolti snýst ekki um það hvort liðið hafi boltann meira í leiknum og spili einhvern fallegan fótbolta. Fótbolti snýst um að vinna leiki. Það sýndi United þegar það mætti Arsenal og það gerðum við líka. Á þessu tímabili og því síðasta hefur Arsenal sýnt að það er ekki fært um að vinna deildina,“ segir Ballack.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is