Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 8.2.2010
| 18:15
Coleman sektaður
Chris Coleman. Reuters
Chris Coleman knattspyrnustjóri Coventry, sem landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson leikur með, var í dag sektaður af enska knattspyrnusambandinu.
Coleman missti stjórn á skapi sínu eftir leik Coventry og Ipswich í síðasta mánuði og lét hann dómara leiksins fá það óþvegið. Coleman var sektaður fyrir óprúðmannlega framkomu og þarf að greiða 1.000 pund sem jafngildir um 200.000 krónum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






