Vill frekar Arsenal en Liverpool

Marouane Chamakh á fullri ferð í leik með Bordeaux. stækka

Marouane Chamakh á fullri ferð í leik með Bordeaux. Reuters

Marouane Chamakh, marokkóski framherjinn sem leikur með Bordeaux í Frakklandi, kveðst frekar vilja ganga til liðs við Arsenal en Liverpool í sumar. Útlit er fyrir að valið hjá honum standi á milli þessara tveggja félaga og látið hefur verið liggja að því í enskum fjölmiðlum að hann sé nánast búinn að semja við Liverpool.

En miðað við orð leikmannsins sjálfs í franska íþróttadagblaðinu L'Equipe virðist hann frekar vera á leiðinni til Arsenal. Chamakh er laus undan samningi sínum við Bordeaux í sumar og er því með öll mál í sínum höndum.

„Ég er með öll spil á hendi sjálfur og þarf ekki að setja neina pressu á sjálfan mig. Með hverjum degi sem líður er ég þó minna tengdur Bordeaux og ég ætla að fara í ensku úrvalsdeildina. Ef það verður mitt að velja á milli, mun ég fara til Arsenal. Hjá Bordeaux hefur mér liðið afar vel og ég mun fljótlega tilkynna mínar fyrirætlanir svo félagið geti fundið arftaka minn í rólegheitum,"  sagði Chamakh við L'Equipe.

Chamakh er 26 ára gamall, kraftmikill og sterkur framherji, sem er öflugur í loftinu og hefur skorað 9 mörk fyrir Bordeaux í vetur.

Sjónvarpsstöðin Canal + spurði Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal um Chamakh eftir að ummæli framherjans höfðu verið birt.

„Við stefnum alltaf á að láta drauma okkar rætast og munum halda áfram að reyna. Okkur líst mjög vel á hann og ef hann skrifar undir hjá okkur munum við láta ykkur vita fyrsta allra," sagði Wenger.

Chamakh er fæddur í Frakklandi og hefur alla tíð leikið með Bordeaux. Hann hefur skorað 67 mörk í 270 deildaleikjum fyrir félagið. Hann hefur verið landsliðsmaður Marokkó frá 19 ára aldri og skorað 15 mörk í 52 landsleikjum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is