Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 8.2.2010
| 14:53
West Ham lánar Nouble til WBA
West Bromwich Albion, sem er í harðri baráttu um sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur fengið framherjann Frank Nouble lánaðan í einn mánuð.
Frá og með morgundeginum geta lið í neðri deildunum í Englandi fengið leikmenn lánaða og Nouble verður löglegur með WBA annað kvöld þegar liðið mætir Scunthorpe.
Nouble er 18 ára gamall, leikmaður enska U19 ára landsliðsins, og hefur fengið nokkur tækifæri í framlínu West Ham í vetur. Alls hefur hann spilað 8 leiki í úrvalsdeildinni. Nú hefur félagið hinsvegar fengið bæði Benni McCarthy og Ilan í sínar raðir og þar með fækkar tækifærum hans.
Reiknað er með að Nouble spili sex næstu deildaleiki WBA, sem er í öðru sæti 1. deildar, en hann er ekki löglegur með liðinu í bikarkeppninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






