Fellaini missir af leiknum gegn Chelsea

Fellaini fagnar marki með Everton. stækka

Fellaini fagnar marki með Everton. Reuters

Belginn hárprúði Marouane Fellaini getur ekki leikið með Everton annað kvöld þegar liðið tekur á móti toppliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Fellaini meiddist á ökklanum í leiknum gegn Liverpool á laugardaginn eftir tæklingu við Grikkjann  Sotirios Kyrgiakos. Í fyrstu var óttast að hann hefði fótbrotnað en svo reyndist ekki. Hann verður hins vegar ekki leikfær annað kvöld og óvíst er hvenær hann getur spilað á ný en belgíski miðjumaðurinn hefur verið mjög öflugur í liði Everton á tímabilinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is