Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 9.2.2010
| 14:19
Ferdinand dregur áfrýjun til baka
Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins, hefur dregið til baka áfrýjun vegna aukaleikbannsins sem aganefnd enska knattspyrnusambandsins setti hann í á dögunum.
Ferdinand fékk þá þriggja leikja bann fyrir að slá Craig Fagan, leikmann Hull City, og aganefndin bætti við fjórða leiknum eftir að hann áfrýjaði úrskurðinum. Sú áfrýjun þótti ekki á rökum reist.
Ferdinand áfrýjaði að nýju, en þar sem hann hefði líklega ekki borið annað úr býtum en að fá fimmta leikinn í bann, hefur hann nú dregið það til baka.
Miðvörðurinn öflugi á eftir að taka út bann í deildaleikjum gegn Aston Villa og Everton en verður til taks fyrir úrslitaleik deildabikarsins, gegn Aston Villa.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






