Grétar Rafn í liði Bolton gegn City

Grétar Rafn Steinsson. stækka

Grétar Rafn Steinsson. www.bwfc.co.uk

Grétar Rafn Steinsson hefur jafnað sig af veikindum og er í byrjunarliði Bolton sem mætir Manchester City á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Patrick Vieira er í byrjunarliði City í fyrsta sinn en hann lék sinn fyrsta leik með liðinu um síðustu helgi þegar hann lék síðasta hálftímann í tapleik gegn Hull.

Annan leikinn í röð er Jóhannes Karl Guðjónsson ekki í leikmannahópi Burnley en liðið mætir Fulham á útivelli.

Hermann Hreiðarsson er meiddur og leikur ekki með Portsmouth sem tekur á móti Sunderland á Fratton Park.

Aron Einar Gunnarsson er í byrjunarliði Coventry sem tekur á móti Nottingham Forest í ensku 1. deildinni.

Heiðar Helguson verður í fremstu víglínu hjá Watford sem fær Bristol City í heimsókn.

Íslendingaslagur er í Reading þar sem heimamenn taka á móti Plymouth. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru í byrjunarliði Reading, Gunnar Heiðar Þorvaldsson er á bekknum en Gylfi Þór Sigurðsson er meiddur og er ekki í leikmannahópi Reading. Kári Árnason er í liði Plymouth.

Emil Hallfreðsson er að vanda í byrjunarliði Barnsley sem mætir Middlesbrough á útivelli en Emil skoraði sigurmark Barnsley um síðustu helgi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is